HallóÁsta María Guðbrandsóttir
Hæ það er svo langt síðan ég hef komist í tölvu mín er búin að vera biluð og hún er það ennþá hún ákvað bara að vera góð við mig í dag.ég er byrjuð að vinna og líkar alveg svakalega vel ég er bara svo gömul miðað við þær sem ég er að vinna með en þær eru um 20 og yngri. en það er fínt og alveg æðislega börnin sem eru á frístundaheimilinu. Haldiði ekki að hún Helga mína var allt í einu kominn með tvær tennur í viðbót nema að hún fékk ekki beint fyrir ofan hinar heldur er hún eins og lítil vampíra kominn með vígtennur og brosir til allra til þess að sýna tennurnar svakastoltar stelpur. og Guðbrandur minn er alltaf jafn sætur og góður strákur og verður alltaf betri og betri stóri bróðir. alveg æði.og það gengur alveg frábærlega allt hérna hjá mér núna.
Látið nú heyra í ykkur. bæjó.
long time no seeÁsta María Guðbrandsóttir
Mig langaði að skrifa smá það er svo langt síðan síðast. Ég er að fara í fylleríis ferð til köben á föstudaginn með vinnuni hans Jóns og mig hlakkar svo rosalega mikið til að vera barnlaus heila helgi og geta bara leikið okkur og gert það sem við viljum. Núna er Guðbrandur Hættur í karate hann var alveg hættur að nenna að mætta og ég var farinn að múta honum til að mætta en við ætlum að fara saman að læra á skauta og svo ætlar hann að fara að læra íshokkí ég vona bara að það gangi betur heldur en karateið. og ég er byrjuð að vinna hálfan daginn á frístundaheimili í grafarvogi og það er alveg svakalega gaman gott að komast aðeins út og Helga er í pössun hjá stelpu sem býr rétt hjá okkur og hún er heima með eina litla stelpu og Helga mín er voða glöð hjá henni nema hún er svakalega hrædd við mannin hennar en það breytist vonandi þegar hún er búin að vera lengur hjá konuniég skrifa meira seinna bæjó.
sko...Ásta María Guðbrandsóttir
ef þig talið ekki við mig og segjið mér hvað er í gangi hjá ykkur og hvernig þið hefið það þá er ekki hægt að ætlast til þess að ég geri ekki eitthvað sem þið eruð fúlar út af og ekki tala um reglur hingað og þangað ef ég veit ekki þá get ég ekki sleppt því. Og mér fynnst mjög leiðinlegt að geta ekki sagt ykkur neitt nema það fari þanngað sem það á ekki að fara og þá í allt öðru samhengi heldur en ég meinti það.okey bæjó.
HallóÁsta María Guðbrandsóttir
Ég er að fara að gera geðveikt skemmtilegt í sumar ég er að fara til útlanda og þetta verður svo skemmtilegt að þessi ferð prumpar á sólarlanda ferðir. sko Guðbrandur fer einn með flugi til Auðar og ég og jón förum með norrænu nokkrum dögum seinna og við ætlum að taka með okkur tjald og allan útilegu búnað og verðum nátturulega á bílnum og við ætlum að keyra um allt danmörk og fara og ná í Guðbrand í Odense og skoða fullt og svo á leiðini heim þá stoppum við í færeyjum og verðum þar í tvo daga og Guðbrandur með. þetta verður æði ég held að mig hafi aldrei hlakkað svona mikið til að fara til útlanda.Heyrumst seinna bæjó.
hætt við í bili.Ásta María Guðbrandsóttir
vitiði ég nenni ekki að halda hitting þannig að ég ætla að fresta honum en ég læt ykkur vita þegar ég ætla að halda.hallóÁsta María Guðbrandsóttir
Ég ákvað að birta aðeins til hérna hjá mér og setja nýja mynd núna af Helgu Lilju það er fullt búið að ské síðan ég skrifaði síðast en númer eitt tvö og þrjú er að hún Helga mín er sko kominn með tvær tönnslur svaka stórar og flottar og ég og Jón trúlofuðum okkur á þorláksmessu og Guðbrandur er alltaf jafn góður strákur nema hann er allt of fljótur að verða stór. bless í bilihættÁsta María Guðbrandsóttir
Ég hef ákveðið að hætta að blogga í bili ég nenni þessu aldrei en ég byrja kannski aftur. og ef þið viljið vita hvað er að ske hjá mér þá er alltaf hægt að hringja og þið eruð alltaf velkominn í heimsókn.bæjó
duglegasti strákurinn minn.Ásta María Guðbrandsóttir
Ég verð að segja ykkur smá sögu.Sko Breki fór í karate í dag og hann er oft samferða vini sínum heim sem býr hérna við hliðina á okkur og í dag þá ætlaði hann að vera samferða honum nema hann er búin í karate klukkan 17.50 og ég hringdi í mömmu vinar hans klukkan 18.10 vegna þess að þá var hann ekki kominn og ég vildi athuga nema þá var það pabbi vinar hans sem náði í hann og hún náði ekki nógu tímanlega í hann til að segja honum að Breki færi með þannig að hann keyrði heim og var svona hálfnaður þegar hún hringdi og sagði að breki hefði átt að fara með líka þannig að hann fær smá sjokk og fer til baka nema að þá er Breki hvergi nálagt og hann leitar í kringum alla gravarvogslaug og íþróttahúsið og allar gönguleiðir í kringum íþróttahúsið og ég ein heima bíllaus og með helgu lilju og ég var fara að gráta alveg á fullu og farinn að sjá fyrir mér alskonar vonda men búna að ná honum.
Svo stend ég úti og er að horfa hvort þeir séu að koma eftir götuni og þá var klukkan orðin 18.45 og ég orðin virkilega hrædd um litla mannin minn. Og þá sé ég lítinn mann koma labbandi eftir götuni voða rólegur í myrkrinu.
þá hafði hann orðið hræddur þegar þeir fóru og farið að gráta nema í staðin fyrir að standa fyrir utan íþróttahúsið og gráta þá labbaði hann af stað heim og hann var alveg hættur að gráta þegar hann kom heim og mér fynnst hann svo duglegur að hafa labbað heim og að hafa radað þótt að það var kolniðamyrkur.
Hann er stór og hugrakkur.
bless í bili.
30 ástæður fyrir því að súkkulaði sé betra en kynlífÁsta María Guðbrandsóttir

1. Þú getur fengið súkkulaði.
2. "Ef þú elskar mig þá gleypirðu þetta" hefur raunverulega merkingu með súkkulaði.
3. Súkkulaði fullnægir þó það sé orðið mjúkt.
4. Þú getur hættulaust fengið þér súkkulaði meðan þú keyrir.
5. Þú getur látið súkkulaði endast eins lengi og þú vilt.
6. Þú getur fengið þér súkkulaði fyrir framan mömmu þína.
7. Súkkulaði kvartar ekki þó þú bítir fast í hneturnar.
8. Tvær manneskjur af sama kyni geta fengið sér súkkulaði saman án þess að vera kallaðar klúrum nöfnum.
9. Orðið "skuldbinding" hræðir súkkulaði ekki í burtu.
10. Þú getur fengið þér súkkulaði í vinnustólnum/við vinnuborðið á vinnutíma án þess að koma vinnufélögunum í uppnám.
11. Þú getur boðið ókunnugum súkkulaði án þess að eiga það á hættu að vera sleginn utanundir.
12. Þú færð ekki hár í munninn af súkkulaði.
13. Með súkkulaði er engin þörf á að þykjast.
14. Súkkulaði gerir þig ekki ólétta.
15. Þú getur fengið þér súkkulaði á hvaða tíma mánaðarins sem er.
16. Það er auðvelt að finna gott súkkulaði.
17. Þú getur fengið þér eins margar tegundir af súkkulaði eins og þú ræður við.
18. Þú ert aldrei of ungur eða of gamall til að fá þér súkkulaði.
19. Þegar þú færð þér frábært súkkulaði þá heldur það ekki vöku fyrir nágrönnunum.
20. Það er allt í lagi að borga fyrir súkkulaði.
21. Súkkulaði lítur jafn vel út þegar þú ert edrú.
22. Þú færð ekki vandræðalegar sýkingar af súkkulaði.
23. Súkkulaði er sama þó þú sofnir strax eftir að þú hefur fengið þér það.
24. Þú færð ekki á þig rasistastimpil þó þér finnist ljóst súkkulaði betra en dökkt.
25. Fólk fer ekki hjá sér þó þú fáir þér súkkulaði á almannafæri.
26. Þó þú fáir þér súkkulaði með félögum þínum er ekki litið á þig sem saurlífissegg.
27. Súkkulaði getur ekki krafið þig um meðlag.
28. Súkkulaði er sama hvorum megin þú sefur í rúminu.
29. Þú ert ekki kölluð drusla þó þú hafir prófað margar tegundir af súkkulaði.
30. Enginn slúðrar um með hverjum þú hefur borðað súkkulaði.
:)Ásta María Guðbrandsóttir
Vitið þið hvað ég er að fara að gera á morgun hún Helga mín er að fara að fá nafnið sitt og mig hlakkar svo rosalega mikið til en þetta er eiginlega of auðvelt ég pantaði skírnartertu hjá bakarameistaranum og eg ákvað bara að panta allt hjá honum líka þannig að ég fæ a morgun heita rétti brauðertur og súkkulaði köku allt sent til mín og eg hef alldrei haft svona lítið að gera þegar eg er að fara að halda veislu en mjög gaman .ég skrifa meira seinna bæjó.
